Sparisjóðirnir eru að standa sig

Ef ykkur finnst bankarnir stóru vera að misnota aðstöðu sína og græða milljarða á okkar kostnað er mjög einfalt að færa viðskiptin sín yfir í sparisjóðina (nema SPRON, því gamli Búnaðarbankinn ætlar að gleypa hann fyrir smáaura.) Ég færði öll viðskiptin mín fyrir stuttu og það var miklu auðveldara en ég hélt.
mbl.is Bankarnir fá 80 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er frá London

Beckham er fæddur og uppalinn í London. Fjölskyldan hans býr þar. Það er skýringin á því hvers vegna hann vill æfa í London. Honum er alveg sama um SAF.
mbl.is Beckham aftur til Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geimferja ekki geimskutla

Geimferja fer fram og til baka. Geimskutla fer bara aðra leið. Sé ekki betur að en að geimferjan Discovery hafi farið út í geim og síðan komið til baka!
mbl.is Geimferjan Discovery lent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra að bíða

Ég ætla að bíða til næsta vors áður en ég fer að fjáfesta í búðum. Held að þessir aðilar séu of snemma ef þeir ætla að græða á þessu.
mbl.is Fjársterkir menn að kaupa húsnæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannfjöldinn og nýbyggingar

Náttúruleg mannfjölgun (fæðingar umfram dauðsföll) á Íslandi er u.þ.b. 3000 manns á ari. 3000 manns þurfa u.þ.b. 1000-1500 íbúir á ári. Ef byggingaraðilar eru að smíða um 5000 íbúðir á ári, eins og hefur verið síðustu 2-3 árin er ekkert að furða að þeir eru að lenda í vandræði núna. Uppsagnir og gjaldþrot. Hugsa menn ekkert fram í tímann og spá í þörfina. Nei þeir bara byggja. Það eru ekki til endalausir peningar til að byggja!!

Ég vorkenni þessum byggingaraðilar ekki neitt. Það þýðir heldur ekkert að flytja inn Pólverja í þúsundatali bara til að byggja íbúðir. Menn verða að bera ábyrgð á gerðum sínum.


Sparaðu a.m.k. 10%

Hvernig er hægt að spara bensín (og olíu)?

Hér eru nokkur góð ráð.

Í fyrsta lagi má á að hafa réttan loftþrýsting í hjólbörðunum. Það má spara 5% og jafnvel 10% er loftþrýstingurinn er rétt stilltur.

Í öðru lagi minnkar eldsneytið eyðslan ef ekið er á 90km hraða út á landi í stað 90km+ (sem er reyndar ólöglegt). Í olíukreppunni 1973 minnkuðu Bandaríkjamenn hraðann á hraðbrautunum úr 70 mílum niður í 55 mílur (um 110km niður í 90km) til að spara eldsneyti. Bensín eyðslan minnkaði um 15%  og að auki fækkaði dauða- og alvaralegum umferðarslysum um helming, sem er líka mjög mikill sparnaður fyrir samfélagið.

Það má halda áfram og benda fólki á að ganga eða hjóla styttri vegalegndir eða taka strætó, ef maður þarf ekki að skipta um vagn!


mbl.is Bensínhækkanir hafa áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hver borgar?

Leit var að fara af stað og hefur eflaust kostað eitthvað. Og hver borgar, þótt formleg leit hafi ekki farið að fullu af stað? Eitthvað hefur þetta samt kostað. Og svo voru þeir ekkert týndir heldur sofandi í bílnum sínum á hringveginum.


mbl.is Norsku feðgarnir fundnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíutunnan í $1000

Ég ætla að yfirbjóða alla þessa sérfræðinga og spá að olíutunnan fara í $1000. Ég ætla ekki heldur gefa upp hvenær eða af hverju en tunnan fer í $1000.


mbl.is Olíuverð í 250 dali?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðjón

Höfundur

Guðjón Ó.
Guðjón Ó.
Reykvíkingur í 10 ættliði. Mikill náttúru unnandi.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 24842

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband