Þjóðnýtum þessar eignir

Ríkið þjóðnýtti hlutabréfin mín í Landsbankanum. Nú legg ég til að við þjóðnýtum eignir þessarar útrása stráka. West Ham talið með.
mbl.is Novator ekki að selja eignir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umferðin eykst í norðri

Ein frétt, sem birtist í Morgunblaðinu nú fyrir stuttu, sem vakti athygli mína er aukning  skemmtiferðaskipa umhverfis Ísland. Af hverju er þetta frétt? Jú vissulega er þetta jákvætt fyrir ferðaþjónustuna að fá erlenda ferðamenn inn í landið. Að vísu eyða þeir ekki miklum peningum, því mest allt er innfalið um borði í skipinu og ferðamennirnir fara "bara" í land til að skoða sig um og taka myndir. En þetta er stórfrétt samt sem áður, því hvað gerist ef skemmtiferðaskip, sem getur verið 20.000-150.000 tonn að stærð, með mörg hundruð og jafnvel nokkur þúsund manns innan borðs verður fyrir slysi t.d. eldur um borð, árekstur við annað skip, eða rekst á borgarísjaka? Getum við komið skipinu til aðstoðar? Ísland ber ábyrgð á  1.900.000 km2 hafsvæði í kringum landið. Er landið nógu vel í stakk búið til að leysa slíkan vanda ef stórt farþegaskip leitar eftir aðstoð á okkur ábyrgðarsvæði? Ég held ekki og fréttin gefur í skyn að landhelgisgæslan hefur hvorki mannskap né tæki til að fara út í stórtæka björgunaraðgerðir. Landhelgisgæslan er ekki einu sinni með vélar til að sinna eftirliti á svæðinu. Viðbrögð þurfa að vera mjög skjót ef skip lendir í vandræðum t.d. ef eldur kemur upp um borð. Hvernig geta nokkrar íslenskar þyrlur bjargað þúsund manns úr sökkvandi og eða brennandi skipi? Það er bara ekki hægt að mínu mati. Kannski væru nokkur fiskiskip stödd út á hafi til að hjálpa til en hvernig getur 500 tonna togari athafnað sig úti á hafi við að selflytja þúsund manns á milli skipa eða í land? Rætt hefur verið um samstarf við aðrar strandgæslur t.d. við BNA, í fréttinni. Ég spyr hvernig getur strandgæsluskip eða herskip frá BNA komið að gagni ef skemmtiferðaskip lendir í árekstri við borgarísjaka á milli Íslands og Grænlands? Það myndi taka nokkra daga fyrir skipið að komast hingað, ef það væri þá laust í þetta verkefni. Og þótt það væri hægt að koma fólkinu um borð í önnur skip, hvert ætti að fara með það? Hvernig geta strjálbýl og lítil þorp á Grænlandi tekið á móti nokkur þúsund manns allt í einu. Alþjóðasamstarf á þessu sviði er mjög lítið en umferð á hafsvæðinu fyrir norðan Ísland er að aukast t.d. var tvöföldun á umferðinni á milli áranna 2007 og 2008 og komu vel á annað hundrað skip til Íslands í ár. Mörg þeirra héldu áfram til Grænlands, eða Jan Mayen eða til Svalbarða. Hafísþekjan hefur minnkað sértaklega mikið á undanförnum árum og í fyrra  og aftur á þessu hausti hefur siglingaleiðin milli Atlantshafs og Kyrrahafs um Beringssunds verið íslaus, sem þýðir einfaldlega að öll skip, stór eða lítil, geta siglt þessa leið í ágúst og september.  Í dag eru nánast engar reglur um siglingar um Norður-Íshafið. Mjög aðkallandi er að ferðskrifstofur sem eru með skemmtiferðaskip á þessu svæði, strandgæslur, landhelgisgæslur og stjórnvöld á svæðinu komi sér saman a.m.k. um öryggisreglur fyrir svæði og hvað eigi síðan að gera ef slys verður á svæðinu.  Svæðið er gríðarlega stórt, erfitt yfirferðar og mikið fámenni býr á svæðinu sem myndi gera allt björgunarstarf mjög erfitt. Nægir að nefna erfiðleikarnir sem Ný-Sjálendingar lentu í þegar tvö frekar lítil skemmtiferðaskip rákust á ísjaka í fyrra við Suðurskautslandið.

kr.155 líterinn!!

Miðað við dollaragengið í byrjun maí og heimsmarkaðsverð á olíu í byrjun maí ætti verðið á bensín líterinn að vera um kr. 155. Það var verðið þá.  Það er verið að ræna okkur um kr.15 á hvern líter.
mbl.is Eldsneytisverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sá hvítan blett í Botnssúlum

Á leiðinni í gegnum Þingvelli nú í dag sá ég hvítan blett ofarlega í Botnssúlum. Er að spá í að hringja inn og tilkynna að ég hafi séð ísbjörn.


mbl.is Ísbirnir á Hornströndum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjafverð

Ef Búnaðarbankinn ætlar að ræna SPRON á að amk að gera það með heiðarlegu verði. 6-7kr. á hlut er verðið sem var í apríl þegar B.Í. tilkynnti um ránið. Það verð á að gilda amk og allt í peningum ekki í verðlausum bréfum í Exista sem gera ekkert annað að falla í verði.
mbl.is Hafna hluthafar SPRON samrunanum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjólið eða notið strætó

Í mörgum tilfellum er hægt að spara bensín með því að hjóla eða taka strætó. Mörg okkar eru að fara mjög stuttar vegalengdir í bíl. Með minnandi bensínsölu gæti verðið líka farið niður??
mbl.is Eldsneytisverð snarhækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

11 lönd utan ESB nota evruna!!

Og löndin sem nota evruna með leyfi ESB eru: Mónakó, San Marínó, Vatikanið, Mayotta (á Indlandshafi),  Saint Pierre og Miquelon (við Nýfundnaland). 

Síðan eru nokkur til viðbótar sem nota evruna án leyfis ESB og þau eru; Andorra, Svartfjallaland, Kósóvó, Akrotiri og Dhekelia (á Kýpur). Sum þeirra eru reyndar að sækja um að nota evruna með leyfi ESB. Fyrst að 11 lönd noti evruna án þess að vera í ESB því ekki að bæta einu landi til viðbótar?? Ísland!!


mbl.is Upptaka evru ekki möguleg án ESB-aðildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÁN

Þegar Búnaðarbankinn (kaupþing) ákvað að ræna SPRON í apríl var gengið í SPRON um kr.6. Þeir lýstu því yfir að þeir myndi greiða fyrir bréfin með 15% álagi. Allt í lagi með álagið en hvað gera þeir. Þeir þvinga verðið niður í kr.3,83 og kaupa svo. Ég sé ekkert álag í þessu tilboði. LÖGLEGT EN SIÐLAUST YFIRTÖKURÁN.
mbl.is Kaupþing og SPRON sameinast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kauptækifæri!!

Maður á víst að "Buy low, sell high" Spurning hvort verð á decode undir $1 er kauptækifæri eða er fyrirtækið dauðvona!!
mbl.is DeCode hækkar um 4,49%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðjón

Höfundur

Guðjón Ó.
Guðjón Ó.
Reykvíkingur í 10 ættliði. Mikill náttúru unnandi.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 24842

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband