14.6.2008 | 17:13
Mannfjöldinn og nýbyggingar
Náttúruleg mannfjölgun (fæðingar umfram dauðsföll) á Íslandi er u.þ.b. 3000 manns á ari. 3000 manns þurfa u.þ.b. 1000-1500 íbúir á ári. Ef byggingaraðilar eru að smíða um 5000 íbúðir á ári, eins og hefur verið síðustu 2-3 árin er ekkert að furða að þeir eru að lenda í vandræði núna. Uppsagnir og gjaldþrot. Hugsa menn ekkert fram í tímann og spá í þörfina. Nei þeir bara byggja. Það eru ekki til endalausir peningar til að byggja!!
Ég vorkenni þessum byggingaraðilar ekki neitt. Það þýðir heldur ekkert að flytja inn Pólverja í þúsundatali bara til að byggja íbúðir. Menn verða að bera ábyrgð á gerðum sínum.
Um bloggið
Guðjón
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Guðjón
Ég var að koma úr göngutúr hér í Reykjanesbæ og hvert sem litið var er verið að byggja eða nýbúið að byggja.
Hvað var þetta fólk að hugsa og það er ekki svo langt síðan að hundruð - reyndar ekki þúsundir - íbúða voru mánuðum ef ekki árum saman óseldar í Grafarholtinu í Reykjavík.
Ég vil allavega ekki að mínir peningar verði notaðir til að hjálpa verktökum, þeir verða líkt og þú réttilega segir að tak ábyrgð á gjörðum sínum.
Kveðja,
Guðbjörn Guðbjörnsson, 14.6.2008 kl. 17:45
Sæll Guðbjörn,
sammála þér. Það á líka að láta bankanna bera ábyrgð á gjörðum sínum. Þeir hafa grætt 70-80 milljörðum á ári síðustu árin. Hvar eru þeir peningar? Þeir hljóta að geta notað þá til að leysa vandann sinn núna.
kveðja,
Guðjón Ó. (IP-tala skráð) 14.6.2008 kl. 18:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.