Akstursbann á Fimmvörðuhálsi í sumar

Vorleysingar koma seint á Fimmvörðuhálsi. Núna aka tugir jeppa á dag á hálsinum á snjó. Mér finnst umræðan um akstur á hálsinum ættu að fjalla um bann á utanvegakstri þarna í sumar. Hingað til hafa bílar ekki verið að aka um á þessu svæði á sumrin og eru því enginn hjólför eða slóðir þarna. Við eigum strax að leggja línurnar og koma í veg fyrir akstri þarna í sumar. Það mætti t.d. leyfa akstur upp veginn að Baldvinsskála í sumar en þaðan yrðu menn að ganga, enda gostöðvarnar ekki mjög langt í burtu, annars verður allt útspólað á þessu viðkvæmu svæði.

Þessi umræða er brýnni en hvort einhver dekk hafa bráðnað í hraunkantinum.


Top Gear og séra Holt

Þegar bílar frá "séra" Hótel Holt óku upp Skógarheiði frá Skógum, í síðustu viku, eftir veginum sem lögreglan var búinn að loka með keðju sagði engin neitt. Þegar kokkarnir frá "séra" Holt gengu ofan á hraunið til að elda matinn sagði engin neitt. Hvar var eftirlitið þá. En þegar Top Gear menn  tipla framdekkinn á hraunkantinn verður allt eftirlitið vitlaust. Minnir mig á bankahrunið. Sumir komast upp með allt.
mbl.is Top Gear ók upp á heitt hraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært

Það komu of margir til landsins á árunum 2005-8. Núna mega þeir frekar fara heim til sín aftur en að þiggja atvinnuleysisbætur eða byggja tónlistarhús fyrir okkur. Nær væri að íslenskir iðnaðarmenn gerðu það.

Það er nauðsynlegt að 5-6000 til viðbótar fari.


Til hvers ætti hann að fara?

Hann er örrugglega með fín laun hjá miðlungsliðinu Mónakó fyrir að gera ekki neitt. Hann spilar aldrei heilan leik og er oft aldrei með. Þar að auki á hann eftir að skora mark í frönsku deildinni. Hver myndi vilja kaupa hann??
mbl.is Arnór: Eiður hefur ekki uppi nein áform að fara frá Mónakó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað rugl er þetta!

Knattspyrnumaðurinn  kemst varla í miðlungslið í frönsku deildinni. Hverskonar rugl er þetta? Ekki nema von að við getum lítið í karlaboltanum.
mbl.is Eiður og Þóra leikmenn ársins hjá KSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

So what

Ælti hann lendi ekki þar á varamannabekknum eins og venjulega. Fínt að fá borgað fyrir að gera ekki neitt.
mbl.is Eiður Smári orðaður við Everton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar samningurinn

við ESB liggur fyrir verður hann ekki samþykktur í þjoðaratkvæðagreiðslu.

 

Read my words and remember.


mbl.is 58 prósent fylgjandi ESB-viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svavar Gestsson

Þegar Svavar var menntamálaráðherra fyrir rúmlega 20 árum lét hann gera við Þjóðleikhúsið fyrir kr.800miljónir. Það þótti há tala þá og endurbæturnar áttu að duga mjög lengi a.m.k lengur en 20 ár. Hafa blaðamenn algjört gullfiska minni. Eða voru þeir ekki fæddir þegar endurbæturnar áttu sér stað!!
mbl.is Þjóðleikhúsinu ekki lokað í tvö ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Metið kannski jafnað.

Mitt perónulegt met upp og niður Esjuna eru 6 ferðir á einum degi, það gerði ég sumarið 1975. Fór þá   á Kerhólakamb, enda göngustígurinn upp á Þverfellshorn varla kominn á þeim tíma. Var bara að leika mér og vissi ekki þá að um met væri að ræða. Til hamingju með því að jafna metið.

 

Það er þó aldrei að vita hvort einhver annar hafi farið oftar en þetta á einum degi upp á Esjuna. 


mbl.is Maraþonganga á Esjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðjón

Höfundur

Guðjón Ó.
Guðjón Ó.
Reykvíkingur í 10 ættliði. Mikill náttúru unnandi.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 24675

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband